 |
Aug 14, 2008
Lokahóf Þristarins verður föstudagskvöldið 15. ágúst og hefst klukkan 20:00. Það verður í Valaskjálf nema annað komi í ljós. Þó að fyrirvarinn sé stuttur þá er um að gera að mæta því þið hafið ekkert betra að gera!! Kosning verður um besta leikmannin, Þrist ársins og etv. eitthvað fleira...
Eftir hófið er svo eitthvað geim í Valaskjálf fyrir þá sem verða í stuði. Þið þurfið að taka með ykkur einhvern pening, hversu mikið við þurfum að borga fer eftir mætingu og reynið því að draga sem flesta með sem hafa verið að æfa, spila, eða eru gallharðir Þristaraðdáendur.
Posted at 03:47 pm by UMFthristur
Permalink
Aug 12, 2008
Leikurinn gegn 06. apríl endaði með stórsigri aprílmanna 8-1. Við héldum út fyrsta kortérið og þá var eins og allur vindur væri úr okkur og fengum við á okkur 4 mörk fyrir leikhlé. Svipað ástand var upp á teningnum í seinni hálfleik þar sem 06.menn komust í 8-0 en Geisli skoraði svo úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Gunnari Gunnarssyni í vítateignum. Okkur gekk vægast sagt illa að halda boltanum innan liðsins og ég hugsa að 06. apríl hafi haft boltann ca. 85% leiktímans. Marga lykilmenn vantaði hjá okkur s.s. Ingimar, Andrés, Guðjón, Huginn og Markús, og því vantaði mikið upp á hraðann í okkar leik. 06. menn spiluðu fínan fótbolta í þessum leik og óskum við þeim til hamingju með sigurinn. Eitt atriði sem þarf að kippa í liðinn er að við erum að leggja allt of seint af stað og voru menn mættir upp á völl kortér í leik sem er alls ekki nóg til að hita almennilega upp, enda sást að menn voru búnir á því í seinni hluta fyrri hálfleiks þegar við fengum á okkur 4 mörk.
Byrjunarliðið:
Geisli
Kristó Hafþór Flosi Soffi
Bjarni Einar Hjalti Egill
Kalli Ben Jens
Á bekknum voru Valdís, Garðar, Gunnar Gunn, Arnar og svo kom Baddi eftir að leikur hófst.
Næsti leikur á að vera á Höfn á sunnudaginn. Spurning ef við ætlum að hafa lokahóf hvort við eigum að reyna að færa leikinn fram á laugardaginn og hafa hófið um kvöldið eða hafa lokahófið á föstudaginn og fara svo bara á sunnudaginn? Kommentið.
Einar
Posted at 05:40 am by UMFthristur
Permalink
Aug 8, 2008
BREYTING: Seyðisfjörður á mánudag
Þristur heimsækir 06. apríl á Seyðisfirði á mánudag klukkan 20:00. Hópurinn hittist í Söluskála KHB klukkan 18:45 og leggur af stað kortéri síðar.
Posted at 07:18 am by UMFthristur
Permalink
Jul 27, 2008
Þristur hefur hraðfallið af toppi Malarvinnslubikarnum í vikunni. Á miðvikudag tapaðist mikilvægur toppslagur gegn KR í Höllinni á Reyðarfirði. Þristur réði leiknum og skapaði sér nokkur fín færi, Björgvin úr Símanum hitti ekki markið eftir úthlaup markvarðar KR. Í seinni hálfleik skaut Ívar Karl í stöng og á lokamínútum klúðraði hann skallafæri eftir góða fyrirgjöf Egils. Ívar og Hafliði bættust í hópinn í hálfleik að lokinni Hattaræfingu. Fullkomlega ósanngjarnt tap. Maður leiksins var Daninn Walter sem loksins tókst að draga í leik eftir frábæra frammistöðu á æfingum. Hann var aftari maður á miðjunni og hafði Vigni Örn Ragnarsson í rassvasanum megnið af leiknum. Byrjunarliðið: Geisli; Hafþór, Flosi, Sigurvin, Kristó; Ingimar, Walter, Andrés, Egill; Björgvin, Bjarni. Varamenn: Elli, Garðar, Ívar Karl, Hafliði. Öskrari: Gunnar Stuðningsmaður: Andri
Í dag tapaði liðið 2-6 fyrir BN. Walter kom Þristi yfir á sjöundu mínútu þegar hann sendi inn fyrirgjöf Ingimars. Walter meiddist eftir tæklingu eftir kortér og spilaði ekki meir. Við það kom mikið los á leik Þristar, þar sem hann hafði verið lykilmaður í bæði vörn og sókn. Snemma í leiknum hafði hann fengið skell inni í vítateig BN en sekúndum síðar var hann kominn niður til að hjálpa bakverðinum. Strax eftir brotthvarf Walter skoruðu gestirnir tvö mörk. Tommi fékk eitt færi fyrir hálfleik þegar hann prjónaði sig í gegnum vörn BN en markvörðurinn kom vel út á móti og varði. Í upphafi seinni hálfleiks sótti Þristur stíft og hélt BN nánast inni á eigin vallarhelmingi fyrsta kortérið. Besta færið fékk Sindri sem skallaði framhjá fyrir opnu marki eftir fyrirgjöf Ingimars. Um leið og þeir sluppu þaðan refsuðu þeir grimmilega fyrir. Fyrst komust þeir í 1-3, Andrés minnkaði muninn í 2-3 en síðan fylgdu þrjú mörk gestanna í röð. Öll mörkin voru skoruð á tíu mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Við bættist að Sigurvin fór af velli. Eftir þessa leiki er á brattann að sækja fyrir Þrist í toppbaráttunni og liðið þarf að reiða sig á að önnur lið reiti stig hvert af öðru. Samkvæmt leikjadagskránni eru eftir útileikir við 06. apríl á Seyðisfiðri og Dynamó á Höfn. Fyrrnefndi leikurinn er skráður 10. ágúst, sá seinni 17. ágúst. Þristarmenn þurfa því ekki að spila næstu tvær vikurnar en æfingar halda áfram, mánudaga og fimmtudaga á Fellavelli klukkan 21:00. Einhverjar breytingar verða á leikmannahópnum næstu vikurnar. Walter er á leið heim til Danmerkur en Einar Hróbjartur er væntanlegur aftur eftir sólarlandaferð. Byrjunarliðið: Geisli; Hafþór, Flosi, Sigurvin, Zoffi; Ingimar, Walter, Huginn, Andrés; Bjarni, Kalli Ben. Varamenn: Arnar Jón, Kristó, Björgvin Gunn, Elli, Tommi. Stuðningsmenn: Andri, Hjalti hótel, Peeeed. Dómari: Gunnar Eftirlitsmaður: Sigurhjörtur
Posted at 04:05 pm by UMFthristur
Permalink
Jul 26, 2008
Ungmennafélagið Þristur - Boltafélag Norðfjarðar árið nítjánhundruðníutíuogsex Gervigrasvellinum, Fellabæ, Fljótsdalshéraði, Norður-Múlasýslu, Íslandi, Evrópu, Plánetunni Jörð, Mjólkurbrautinni Sunnudaginn tuttugastaogsjöunda júlí árið tvöþúsundogátta eftir Krist. Klukkan átjánhundruð. Mætið stundvíslega. Munið snyrtilegan klæðnað og nafnskírteinin.
Kveðja Hljómsveitin Nefndin
Jón Arngrímsson segir: „Darara diridiri verið velkomnir heim úr Borgarfirði vinir af fyllerísgeim.“
Posted at 03:27 am by UMFthristur
Permalink
Jul 21, 2008
Leikurinn gegn KR sem átti að fara fram miðvikudaginn 30. júlí, verður flýtt um viku og verður því næstkomandi miðvikudag (23. júlí) kl. 20.00 á reyðarfirði.
Stefnum á mætingu kl. 19.00 í skálann, eða helst aðeins fyrr og reyna að vera komnir af stað upp úr 19.00.
Áfram Þristur!
Hafþór
Posted at 05:11 pm by UMFthristur
Permalink
Jul 20, 2008
Annar glæsilegur og afar sætur sigur í höfn eftir að hafa sótt UMFB heim og haft betur 2-1. Björgvin sýndi hvað í honum bjó þegar hann kom okkur yfir 1-0. Jens lyfti boltanum síðan yfir markmanninn þegar leið á seinni hluta fyrri hálfleiks og kom okkur í 2-0 og við héldum þeirri stöðu fram að hálfleik. Seinni hálfleikur byrjaði síðan ekki alveg að óskum og við fengum á okkur mark fljótlega og staðan því 2-1 og við héldum þeirri stöðu svo fram að leikslokum.
Samkvæmt leikjaplani er næsti leikur heimaleikur á móti BN á sunnudaginn um næstu helgi. Miðvikudaginn þar á eftir er eftir leikjaplaninu útileikur á móti KR en þeir hafa farið fram á að annaðhvort flýta eða fresta leiknum um viku sökum þess að Leiknir á leik þennan sama dag en KR byggja lið sitt að miklu leyti á varamönnum í Leikni.
Það er því spurning hvort menn vilja spila þennan leik við KR núna á miðvikudaginn (23.07) eða miðvikudaginn eftir verslunarmannahelgina (06.08).
Endilega hugsið um það hvenær við viljum spila þennan leik og reynum að ákveða það svo á æfingu á morgunn.
Hafþór
Posted at 04:06 pm by UMFthristur
Permalink
Jul 19, 2008
Mæting í leik gegn UMFB verður í söluskálanum stundvíslega kl 16 á . Leikurinn mun fara fram á Borgarfirði hinum eystri kl 18:00 sunnudaginn 20. júlí.
Posted at 01:44 pm by UMFthristur
Permalink
Jul 16, 2008
Glæsilegur leikur við Dýnamó sl. sunnudag sem endaði 3-1 okkur í vil. Við erum þar með búnir að blanda okkur í toppbaráttuna. Dýnamó komst yfir 1-0 eftir mark úr aukaspyrnu, Andrés jafnaði síðan metin fyrir okkur eftir fyrirgjöf frá Ingimar. Annað markið kom síðan eftir að Ingimar lyfti boltanum yfir markmanninn sem kom langt út á móti og boltinn stefndi rétt framhjá markinu þegar Björgvin kastaði sér eftir boltanum af harðfylgni og stangaði boltann inn og fór sjálfur glæsilega inn á eftir honum (með þeim leiðinlegu afleiðingum reyndar að lenda á neðri slánni aftan á markinu). Huginn setti síðan lokamarkið með stórglæsilegri aukaspyrnu.
Minni á æfingatímana, mánudagar og fimmtudagar kl. 21.00, næsta æfing s.s. annað kvöld, allir að mæta!
Svo er stórleikur á sunnudaginn gegn toppliðinu UMFB á Borgarfirði, mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta þangað. Samkvæmt leikjadagskránni er leikurinn settur kl. 18.00, ef það breytist eitthvað þá set ég það inn hér á síðuna.
Hafþór
Posted at 03:54 pm by UMFthristur
Permalink
Jul 11, 2008
Leikurinn við Dýnamó verður á Fellavelli klukkan 18:00 á sunnudaginn. Mæting á völlinn uppúr 17:00. Ég verð fjarverandi þar sem ég er á leið til Tyrklands að semja við leikmenn eins og Semih Seturk og Abdullah Ercan. Einnig hefur Halim Al lýst yfir vilja til að klæðast græna búningnum. Hef ég boðið nokkra leikmenn í skiptum þ.á.m. Garðar og munu leikmennirnir búa á Vaði á meðan Íslandsdvöl þeirra stendur yfir.
Einar
Posted at 10:47 am by UMFthristur
Permalink
|
 |
|
|
 |
|